Ráðherrar í ólgusjó 27. apríl 2006 18:45
Framhjáhöld og embættisafglöp eru á meðal þess sem þrír ráðherrar í ríkisstjórn Tony Blairs þurfa að svara fyrir þessa dagana. Hneykslið kemur sér verulega illa fyrir Verkamannaflokkinn, því sveitarstjórnakosningar eru á næsta leyti í Bretlandi. Sveinn H. Guðmarsson. Óhætt er að segja að bresku blöðin hafi komist í feitt þegar uppvíst varð að hvorki fleiri né færri en þremur ráðherrum hefði orðið alvarlega á í messunni, á einum og sama deginum. Gula pressan hefur skemmt sér sérstaklega vel yfir framhjáhaldi aðstoðarforsætisráðherrans Johns Prescott en komið hefur í ljós að hann átti í löngu ástarsambandi við ritara sinn þrátt fyrir að hafa verið giftur í 45 ár. Patricia Hewitt, heilbrigðisráðherra, hefur sömuleiðis fengið fyrir ferðina. Hún var höfð að háði og spotti á ráðstefnu hjúkrunarfræðinga þar sem hún hélt því fram að allt væri í himnalagi í breska heilbrigðiskerfinu. Þessi mál eru hins vegar smámunir í samanburði við klemmuna sem Charles Clarke innanríkisráðherra er í. Hann varð að biðjast opinberlega afsökunar eftir að greint var frá því að rúmlega eitt þúsund fangar af erlendum uppruna hefðu verið látnir lausir úr haldi án þess að fjallað hefði verið um hvort vísa ætti þeim úr landi, eins og þó er lögbundið. Í þessum hópi eru menn sem dæmdir hafa verið fyrir alvarlega glæpi á borð við morð og nauðganir og því er málið litið mjög alvarlegum augum. Í fyrirspurnartíma í þinginu í gær sóttu íhaldsmenn mjög hart að Tony Blair forsætisráðherra og skoruðu á hann að láta Clarke víkja úr stjórninni. Samherjar Blair hafa í dag reynt að gera lítið úr þessum hneykslismálum en eflaust eiga breskir kjósendur eftir að hafa þau í huga þegar þeir greiða atkvæði í sveitarstjórnarkosningum í upphafi næsta mánaðar.
Erlent Fréttir Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Innlent Fleiri fréttir Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Sjá meira