Mannskæðasta sjálfsmorðsárásin í rúmt ár 17. apríl 2006 19:01
Sextán ára gamall liðsmaður palestínsku samtakanna Heilagt stríð varð í dag níu manns að bana í Tel Aviv í Ísrael. Formælandi Hamas-hreyfingarinnar segir árásina, sem er sú mannskæðasta í rúmt ár, lögmæta sjálfsvörn. Sextán ára gamall piltur frá Jenín er talinn hafa framið sjálfsmorðsárásina í Tel Aviv í morgun. Níu biðu bana og 49 særðust í tilræðinu sem var framið fyrir framan fjölfarinn skyndibitastað við aðalumferðarmiðstöð borgarinnar. Það kom fáum á óvart að samtökin Heilagt stríð lýstu yfir ábyrgð á hryðjuverkinu en þau hafa staðið á bak við flestar slíkar árásir sem gerð hafa verið í Ísrael undanfarin misseri. Svo mannskætt tilræði hefur hins vegar ekki verið framið í rúmt ár. Ehud Olmert forsætisráðherra sagði nú síðdegis að brugðist yrði við ódæðinu með viðeigandi hætti. Þótt Heilagt stríð hefði þegar eignað sér þann vafasama heiður að hafa komið því í kring sagði Olmert að endanleg ábyrgð lægi hjá Hamas-samtökunum sem nú leiða ríkisstjórn Palestínumanna. Formælandi hreyfingarinnar lét þá skoðun í ljós fyrr í dag að hermdarverkið væri lögmæt sjálfsvörn gegn hernámi Ísraela. Mahmoud Abbas forseti Palestínu sagði slíkt hins vegar víðs fjarri í yfirlýsingu sinni í dag. Sjálfsagt er hefndaraðgerða Ísraela ekki langt að bíða og því er útlit fyrir að enn á ný myndist vítahringur ofbeldis fyrir botni Miðjarðarhafs. Það verður tæpast til að bæta hag íbúa herteknu svæðanna og á meðan verður enginn hörgull á unglingspiltum sem telja sig hafa svo litlu að tapa að píslarvættisdauði er þeim raunverulegur valkostur.
Erlent Fréttir Mest lesið Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Fleiri fréttir Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Sjá meira