Annað áfallið á hajj trúarhátíðnni 12. janúar 2006 19:26
Síðasti dagur trúarhátíðar múslíma í borginni Mekka breyttist í blóðbað í dag. Talið er að yfir 300 manns hafi látist í miklum troðningi við brú þar sem fjölmargir höfðu safnast saman til að grýta veggi sem eiga að tákna djöfulinn. Vel á þriðju milljón pílagríma hefur lagt leið sína til Sádí Arabíu í tilefni Hajj hátíðarinnar. Ekki eru nema nokkrir dagar síðan gistiheimili í borginni hrundi og nærri áttatíu manns létust. Það sem átti að vera hátið trúar í hinni heilögu borg Mekka er því á góðri leið með að breytast í einn stóran harmleik. Auk þeirra hundruða sem týndu lífi í dag slösuðust um eitt þúsund manns í troðningnum og mörgum er vart hugað líf. Troðningurinn varð við Jamarat brúnna, þar sem fjöldi pílagríma safnast jafnan saman í lok Hajj til að kasta grjóti í Al-Jamarat veggina, sem tákna djöfulinn. Að sögn vitna mættust hópar fólks sem voru annars vegar á leiðinni að brúnni og hins vegar frá henni. Fólk hafi hreinlega borist til og frá og enginn ráðið neitt við neitt. Grjótklastið í lok hátíðarinnar er jafnan stórhættulegur viðburður vegna alls þess mannfjölda sem safnast saman á litlu svæði. Aðeins tvö ár eru síðan svipaður harmleikur og í dag átti sér stað á sama stað á sama tíma. Þá létust meira en 200 pílagrímar sem einmitt voru að grýta tákn djöfulsins.
Erlent Fréttir Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Sjá meira