49 manns krömdust til bana 23. febrúar 2006 21:15
Í það minnsta 49 manns krömdust til bana og þrjátíu til viðbótar slösuðust þegar þak yfir markaðstorgi í Moskvu hrundi í morgun. Snjóþyngsli eru talin líklegasta skýringin á slysinu en lögreglan útilokar ekki hönnunargalla. Vanalega er ys og þys á þessum yfirbyggða markaði í Moskvu en í dag hefur verið þar ömurlegt um að litast. Í dögun, skömmu áður en átti að opna markaðinn, hrundi þak hans yfir á annað hundrað starfsmenn, sem flestir eru frá fyrrum lýðveldum Sovétríkjanna, sem þar voru að undirbúa viðskipti dagsins. "We were sitting at the edge, by the door and were able to get out. But those who were in the middle of the market couldn't. There were a lot of them." Björgunarsveitir voru þegar kallaðar á vettvang og unnu þær hörðum höndum í allan dag við að ná fólki út, lífs eða liðnu. Sumir þeirra sem festust undir brakinu náðu að hringja úr farsímum til að láta vita af sér, aðrir hrópuðu einfaldlega af öllum lífs og sálarkröftum. Að minnsta kosti 49 lík hafa fundist í rústunum og þrjátíu hafa verið fluttir til aðhlynningar á sjúkrahús. Enn eru tugir manna sagðir fastir í brakinu. Mikið hefur snjóað í Moskvu að undanförnu og er því talið að þakið hafi hreinlega gefið sig undan rúmlega hálfs metra þykku snjólagi sem hvíldi ofan á því. Lögreglan útilokar þó hvorki að eigendur hafi vanrækt að halda byggingunni við né að hönnunargalli geti verið orsök slyssins því fyrir tveimur árum hrundi þak á mannvirki sem sami arkitekt teiknaði. Þá fórust 28 manns. Í síðasta mánuði létust 66 í Katowice í Póllandi þegar þak á skautahöll lét undan snjóþunga, og í janúarbyrjun dóu 15 þegar þak annarrar slíkrar hallar í Bæjaralandi gaf sig af sömu ástæðum.
Erlent Fréttir Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Fleiri fréttir Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Sjá meira