Einn hefur verið handtekinn 23. febrúar 2006 19:09
Ævintýralegt rán var framið á Englandi í fyrrinótt þar sem stolið var jafnvirði fimm milljarða íslenskra króna í beinhörðum peningum. Lögregla leitar ræningjanna ákaft og hefur einn verið handtekinn. Það var í fyrrakvöld sem ræningjarnir, dulbúnir sem lögregluþjónar, stöðvuðu yfirmann fjárgeymslu Securitas í Kent, skammt utan við Lundúnir, þar sem Englandsbanki geymir seðla sína . Þeir sögðu honum að búið væri að ræna eiginkonu hans og syni og ef hann færi ekki með þeim í geymsluna yrði fjölskyldu hans gert mein. Þegar í geymsluna var komið bundu þeir og kefluðu öryggisverðina og næstu klukkustundina dunduðu þeir sér svo við að stafla 43 milljónum sterlingspunda, eða rúmum fimm milljörðum íslenskra króna, í flutningabíl. Að því búnu slepptu ræningjarnir öllum gíslum sínum ómeiddum, þar á meðal fjölskyldu yfirmannsins, og óku svo á brott út í náttmyrkrið. Í dag bauð lögregla þeim sem veitt gæti upplýsingar sem leiða myndu til handtöku ræningjanna rúmar tvö hundruð milljónir og nú undir kvöld greindi Sky-fréttastofan frá því að einn hefði verið handtekinn. Þetta er langstærsta ránið í sögu Bretlands.
Erlent Fréttir Mest lesið Játa frelsisviptingu og rán en hafna manndrápi Innlent Vön því að hringja í fullorðna karlmenn á fölskum forsendum Innlent Aldrei kynnst neinum sem harkaði jafnmikið af sér Innlent „Ég er fimmtíu kíló, ég get ekki stoppað hann“ Innlent „Hann var hræddur, eiginlega alveg skíthræddur“ Innlent Brotið á barni með því að loka það inni í einveruherbergi Innlent Tilgangurinn að ná í „easy money“ Innlent „Tesla er ekki málið til að standa í svona“ Innlent Öll spjót beinast að ÍBR vegna skipulagsleysis og „rugls í ræsingu“ Innlent Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Innlent Fleiri fréttir Vörpuðu sprengjum á sjúkrahús með 15 mínútna millibili Vilja nú senda El Salvador fangann til Úganda Habeck hættir á þingi Hótar að senda herinn til Baltimore El Mayo sagður ætla að játa sekt Tíunda skotið klikkaði Yfirmaður heraflans er á móti hernámi og vill semja Persónulegar og átakanlegar lýsingar í ævisögu Giuffre Þýska velferðarríkið standi ekki lengur undir sér Á sjöunda tug drepin í stórtækum árásum Ríkisstjóri Illinois sakar Trump um valdníðslu Lést við tökur á Emily in Paris „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Sjá meira