Göngugarpur rekinn frá Rússlandi 14. apríl 2006 19:06
Breskur göngugarpur og bandarískur ferðafélagi hans voru gerðir burtrækir frá Rússlandi í dag eftir að hafa gengið og synt yfir Beringssundið milli Alaska og Síberíu. Karl Bushby er 36 ára fyrrum fallífahermaður í breska hernum. Dómstóllinn í Tsjúkotka í Síberíuhluta Rússlands gaf honum og félaga hans, Bandaríkjamanninum Dimitry Kieffer, tíu daga til að yfirgefa landið. Þeir hafa vegabréfsáritun til Rússlands en við gönguna yfir Bering sundið bar þá af leið og því hittu þeir ekki á landamærastöðina í Uelen þegar þeir stigu á land í Rússlandi. Ingi R. Ingason kvikmyndatökumaður hefur verið að vinna með breska sjónvarpinu BBC að heimildamynd um Bushby. Hann fylgdi honum áleiðis yfir Bering sund í síðasta mánuði. Ingi segir að Bushby og félagi hans hafi þurft að vaða í krapi og synda yfir vakir á leið sinni yfir sundið. Bushby hóf för sína á suðurenda Rómönsku Ameríku fyrsta nóvember 1998 - fyrir átta árum. Nú er hann búinn að ganga upp Ameríku, Suður- og Norður, og var að hefja Asíuför sína þegar hann var tekinn fyrir ólöglega landgöngu í Rússlandi. Næst ætlaði hann að ganga yfir þvera Asíu - Mongólíu, Kasakstan og Rússland - þá yfir meginland Evrópu og ljúka ferðinni í heimabæ sínum Hull árið 2009, eftir þrjú ár. En dómarar í Chukotka eru ekki á því að hleypa honum í gegnum Rússland án stimpils landamæravarða.
Mest lesið Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Innlent Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Innlent Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Innlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Innlent Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla Innlent Barist á hafi úti Erlent „Það er bara frekar slæmt ástand“ Innlent „Ég sé engin rök fyrir því“ Innlent Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent Fleiri fréttir Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Sjá meira