Svíakóngur í umdeildum viðskiptum 13. janúar 2006 21:00
Karl Gústaf Svíakóngur lætur sér ekki nægja að ríkja yfir þegnum sínum. Hann er líka umfangsmikill kaupsýslumaður og það þykir vera á gráu svæði. Svíakóngur og sænska hirðin fá sem svarar tæpum milljarði íslenskra króna á ári af almannafé; hvorki almenningur né Ríkisendurskoðandi getur kannað hvernig hann ráðstafar helmingnum af því. En kóngurinn er athafnamaður jafnhliða opinberri skyldum sínum. Nýlega seldi hann 17. aldar fasteign á besta stað í Stokkhólmi sjálfum sér, það er að segja eigin hlutafélagi, með tapi. Svo seldi hann hlutafélagið, en þannig slapp hann við að borga skatt af viðskiptunum. "Þetta er ekkert annað en skattahagræðing," segir Po Bogren, formaður sænsku Leigjendasamtakanna. "Sé fasteignin seld beint verður að greiða fjármagnstekjuskatt en sé selt gegnum dótturfélag á þennan hátt fær maður gróðann af hlutabréfasölunni en ekki húseigninni og það er skattfrjálst." En hirðin segir að kóngurinn virði lögin. "Við tölum ekki um skattahagræðinu," segir Ingemar Eliason ríkismarskálkur. "Einkaviðskipti konungsins eru innan ramma laga og reglna." Kóngurinn stundar fasteignaviðskipti og húsaleigu, rekur búgarð, ræktar hesta og kýr og fleira og fleira. En það getur verið erfitt að greina á milli þess að vera athafnamaður og kóngur. "Hvað opinberar skyldur varðar ber að hafa hliðsjón af lögunum og þar segir að konungurinn eigi ekki að reka atvinnustarfsemi," segir Eliason. "Því er mikilvægt að það séu skörp skil milli opinberra skyldna hansm, og fjármála þeim tengdum, og einkafjárhagsmuna hans."
Erlent Fréttir Mest lesið Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Innlent Starmer segir af sér Erlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Innlent Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Innlent Ekki lengur flestir sem útskrifast af náttúrufæðibraut Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Segir þörf á fræðslu um kyrkingartak í grunnskólum Innlent Fyrstu hvalirnir skotnir í nótt Innlent Fleiri fréttir Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Sjá meira