Minntust átaka við Sovétmenn 13. janúar 2006 17:45 Kveikt var á kertum við sjónvarpsturninn í Vilníus þar sem fjórtán Litháar féllu í átökum við sovéska hermenn. MYND/AP
Litháar minntust þess í dag að fimmtán ár eru frá umsátrinu um sjónvarpsturninn í Vilníus. Fjórtán manns létust í átökum við sovéska hermenn en þrátt fyrir það er sú stund talin marka endalok sovéskra yfirráða í landinu. Um þúsund manns komu saman í Antalkalnis grafreitnum í Vilníus til að minnast þeirra sem létust fyrir fimmtán árum þegar Sovétmenn reyndu að brjóta niður sjálfstæðisbaráttu Litháa. Vytautas Landsbergis, sem leiddi sjálfstæðisbaráttu Litháa og varð fyrsti forseti landsins, lagði blómsveit að minnisvarða um þá sem létust og Valdas Adamkus forseti sagði athöfnina til marks um að Litháar héldu fast í kröfuna um lýðræði og frelsi og væru reiðubúnir að berjast fyrir því ef þörf krefði. Sovésk stjórnvöld ætluðu sér í ársbyrjun 1991 að bæla niður kröfur Eystrasaltsþjóðanna um sjálfstæði. Hermönnum var því skipað að berja mótmæli Litháa og nágranna þeirra niður og kom tvisvar til blóðugra átaka, fyrst í Vilníus þar sem fjórtán létust og viku síðar í Lettlandi þar sem fimm létust. Sovétmönnum tókst þó ekki að brjóta niður andstöðu íbúa Eystrasaltsríkjanna heldur varð valdbeitingin frekar til að þjappa þeim saman. Seinna sama ár fengu Eystrasaltsríkin þrjú, Eistland, Lettland og Litháen sjálfstæði.
Erlent Fréttir Mest lesið Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hló að svari sambýliskonunnar Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Fleiri fréttir Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Sjá meira