Málaferli vegna Da Vinci lykilsins hefjast í Lundúnum 27. febrúar 2006 13:45
Tveir breskir rithöfundar saka höfund bókarinnar Da Vinci lykillinn um að hafa stolið hugmyndinni að bókinni. Kvikmynd sem byggð er á bókinni gæti seinkað vegna málaferla. Réttarhöldin yfir Dan Brown, höfundi Da Vinci lykilsins, hefjast í London í dag. Sækjendur eru tveir af þremur höfundum bókarinnar Holy Blood and Holy Grail, sem kom út fyrir 24 árum. Þar er meðal annars fjallað um hjónaband Jesú Krists og Maríu Magdalenu, að þau hafi átt barn og að ættingjar þeirra gangi enn um jörðina. Kaþólska kirkjan hafi svo náð að koma í veg fyrir að hið sanna kæmist í sögubækur. Allt er þetta í takt við söguþráðinn í Da Vinci lyklinum og segja höfundar Holy Blood and Holy Grail að Dan Brown hafi eignað sér heiðurinn að bók sem að mestu byggist á áralöngum rannsóknum þeirra. Da Vinci lykillinn hefur selst í meira en þrjátíu milljónum eintaka og því má búast við að farið verði fram á háar skaðabætur. Ef ekki næst samkomulag milli Browns og sækjendanna er búist við að minnst tvær vikur taki að útkljá málið. Sérfræðingar segja að málið komi til með að hafa áhrif á málaferli um höfundarrétt í framtíðinni. Verjendur muni ekki reyna að neita því að bók Browns byggist á hugmynd sem hafi þegar komið fram en hins vegar sé ekkert í lögum sem banni að gerð sé skáldsaga sem byggist á vísindalegum rannsóknum annarra en höfundarins. Um það séu einfaldlega engar reglur.
Erlent Fréttir Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Fleiri fréttir Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Sjá meira