Erlent

Risaflugvél brotlenti

Betur fór en á horfðist þegar bandarísk herflutningavél af gerðinni Lockheed C-5 Galaxy brotlenti við herflugvöllinn í Dover í Delaware í morgun. Sautján manns voru um borð og komust þeir allir lífs af. Sumir þeirra slösuðust þó nokkuð. Vélin var nýlögð af stað áleiðis til Kúveit þegar vélarbilunar varð vart og var henni þá snúið við. Í aðflugi að flugvellinum hrapaði hún hins vegar til jarðar og brotnaði í þrjá hluta. Galaxy-vélarnar eru stærstu flugvélarnar sem Bandaríkjaher hefur yfir að ráða. Þær eru 75 metra langar og vega fullhlaðnar 381 tonn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×