Skutu japanskan sjómann út af landamæradeilu 16. ágúst 2006 12:45 Stríðsminjar um seinni heimsstyrjöldina á Kúrileyjum. MYND/AP
Rússneska strandgæslan skaut í nótt á japanskan fiskibát við Kúrileyjaklasann með þeim afleiðingum að japanskur sjómaður lét lífið. Áratuga löng landamæradeila milli Rússlands og Japans um Kúrileyjarnar er enn óútkljáð - með þessum afleiðingum. Rússneska strandgæslan skaut á fiskibátinn japanska nærri Kunashiri-eyju sem einnig er hluti af Kúrileyjaklasanum. Japönsk stjórnvöld krefjast þess að Rússar skili aftur þremur áhafnarmeðlimum sem teknir voru í áhlaupi á bátinn. Sovéski herinn hertók eyjarnar undir lok seinni heimsstyrjaldarinnar en stjórnvöld í Japan hafa alla tíð sagt hernámið ólöglegt og viljað fá yfirráð yfir eyjunum á ný. Við eyjarnar eru gjöful fiskimið og jafnvel er talið að þar megi finna olíu og jarðgas. Þessi landamæradeila hefur hindrað það að Japanir og Sovétmenn og síðar Rússar skrifi undir sátt sem formlega bindi enda á stríðsátök seinni heimsstyrjaldarinnar. Pútín, forseti Rússlands, hefur boðist til að skila Japönum tveimur eyjanna en utanríkismálayfirvöld í Japan segja af og frá að semja um eitthvað minna en afhendingu allra eyjanna fjögurra.
Mest lesið Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Innlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Erlent Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Erlent Borgarbúar fá annan góðviðrisdag Veður Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Innlent Níu gistu fangageymslur í nótt Innlent Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Erlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Fleiri fréttir Íhugar að bjóða Selenskí eftir allt saman Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Mexíkó hafnar aftur hermönnum Trumps „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Skotárás á Times Square Nyrsta olíuvinnslusvæði Noregs formlega opnað Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Gefur ekkert landsvæði eftir Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Geimfari Apollo 13 látinn Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Ákvörðun öryggisráðsins til marks um enn frekari stigmögnun Skipar hernum í hart við glæpasamtök Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Skýrasta myndin af halastjörnunni, eða vopninu, hingað til Sakaði „sveppamorðingjann“ um að hafa eitrað fyrir sér í þrígang Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Flokkurinn fyrir sjálfstætt Austur-Grænland: „Flug til Íslands allt árið!“ Demókratar setja sig í stellingar fyrir forsetaframboð Neitar að hitta Pútín án Selenskís Grönduðu flugvél frá furstadæmunum og felldu fjörutíu málaliða Geislasverð Svarthöfða til sölu Sjá meira