Joe Cole hefur sagt að hans draumur frá því að hann hóf að horfa á fótbolta hafi verið að lyfta Heimsmeistarabikarnum. „Mín heitasta ósk og minn metnaður núna er að halda á bikarnum. Síðan að ég horfði á HM, á Ítalíu 1990, og sá okkur komast svo nálægt takmarkinu, þá hefur það verið minn draumur að halda á bikarnum," sagði Cole.

