Sagðir selja líffæri úr dauðadæmdum föngum 19. apríl 2006 19:00
Kínverjar selja líffæri úr þúsundum dauðadæmdra fanga á hverju ári, án samþykkis þeirra. Þetta fullyrða bresk samtök sem hafa eftirlit með líffæraflutningum. Kínversk stjórnvöld neita ásökununum. Samtök skurðlækna sem framkvæma líffæraflutninga í Bretlandi fullyrða að á hverju ári sé líffærum beinlínis stolið úr þúsundum fanga sem dæmdir hafa verið til dauða í Kína. Sannanir fyrir þessu hafi hrannast upp undanfarið og ekki sé hægt að draga nema eina ályktun. Þannig taki það oft ekki nema viku að para saman fólk sem sækir um líffæri við líffæragjafa og augljóst sé að fangarnir séu sérstaklega valdir áður en þeir séu teknir af lífi. Það hefur færst í vöxt undanfarin ár að íbúar vestrænna ríkja fari til Kína til að fá ný líffæri og mannréttindasamtök víða um heim hafa um árabil sakað kínversk yfirvöld um að hafa óhreint mjöl í pokahorninu. Samtökin bresku hvetja líffæraþega til þess að hugsa sig vel um áður þeir ákveði að fara til Kína í aðgerð. Kínverskir embættismenn neita ásökunum samtakanna hins vegar alfarið og segja að í þau fáu skipti sem líffæri séu notuð úr föngum sem hafi verið dæmdir til dauða, sé það alltaf með samþykki fanganna. Hin mikla leynd sem ríkir í kringum aftökur í Kína gerir alla upplýsingaöflun mjög erfiða og því stendur bara orð gegn orði. Stjórnvöld í Kína ætla þó að reyna að reka af sér slyðruorðið með því að herða allar reglur og frá og með júlí verður þannig bannað að selja líffæri í landinu og eins verða undirskriftir líffæragjafa alltaf að liggja fyrir áður en farið er út í aðgerð.
Erlent Fréttir Mest lesið Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Meloni segir Trump skrökva upp á sig Erlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Innlent Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Innlent Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Erlent Fleiri fréttir Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Sjá meira