Erlent

Ætla ekki að hætta auðgun úrans

Íranar ætla ekki að hætta auðgun úrans sama hvað tautar og raular. Þeir eru hins vegar tilbúnir að hleypa eftirlitsmönnum Sameinuðu Þjóðanna aftur inn í landið ef öryggisráðið hættir að fjalla um kjarnorkuþróun landsins. Þrjár þjóðir í öryggisráðinu vilja refsa Írönum þegar í stað.

Skýrsla alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar í gær fjallaði um hvernig Íranar hafa brugðist við þrýstingi alþjóðasamfélagsins um að hætta auðgun úrans. Svarið er einfalt og verður áfram. Íranar ætla ekki að fara að þessum tilmælum. Hætti öryggisráðið hins vegar að vasast í málefnum landsins ætla Íranar að leyfa skoðun á þeim stöðum þar sem auðgun úrans fer fram.

En á meðan Íranar vilja að málið færist niður um eitt þrep, frá öryggisráðinu og aftur til alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar, eykst þrýstingurinn frá alþjóðasamféalginu um að færa málið upp um eitt þrep og nú sé að minnsta kosti komið að viðskiptaþvingunum. Þannig vilja Frakkar, Bretar og síðast en ekki síst Bandaríkjamenn að Íranar verði beittir refsiaðgerðum þegar í stað. Sem fyrr er ekki sátt um það og þannig eru fulltrúar Rússa og Kínverja sannfærðari en nokkru sinni um að þolinmæði sé dyggð og enn eigi að reyna að telja stjórnvöldum í tehran hughvarf.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×