Næst á dagskrá: Líf eða dauði 3. júlí 2006 21:08
Það hefur verið forvitnilegt að lesa blöðin í dag, annarsvegar afsagnir og afsakanir liða og leikmanna sem eru farin heim frá HM, hinsvegar vonir og væntingar þeirra sem ennþá eru með. Á morgun, Þýskaland - Ítalía, svakalegur leikur hvernig sem á það er litið. Það væri vont fyrir keppnina ef Þjóðverjar færu út núna, eiginlega skelfilegt, úrslitaleikurinn gæti þá gott eins farið fram á Valbjarnarvellinum, fyrst heimamenn eru komnir svona langt, þá þurfa þeir að spila til úrslita. Paolo Rossi, sá gamli skálkur frá 1982 keppninni, og núverandi þulur á ítalskri sjónvarpstöð, er sannfærður um að Þjóðverjar fari alla leið, kannski er hann bara að mála væntingar, til þess eins að ítalska liðið geti komið á óvart, gott lið, svo sannarlega, og á algerlega helmings möguleika á að spila í Berlín á sunnudaginn kemur. Samt sem áður, Þýskaland - Frakkland, þvílíkur úrslitaleikur væri það, alger klassík fyrirfram, svona einsog Holland - Vestur Þýskaland 1974, nema hvað Frakkarnir eru að rísa uppúr öskustónni eftir vonlausa byrjun, heimsbyggðin gæti vel unnt Zidane þess að klára ferilinn með gullpeningi, sé líka Ballack fyrir mér lyfta dollunni frægu, sannarlega leiðtogi einsog Beckenbauer, best væri að Klinsmann fengi að handleika styttuna góðu aftur. Þar fer sannur foringi, gæti hæglega boðið sig fram til Kanslara í Los Angeles sýslu í Bandaríkjunum, ef hann vantaði einhvern tíma vinnu eftir þessa HM keppni. Það er allt hægt þar, fyrst Arnold varð ríkisstjóri. Það er búið að nefna bakkelsi í höfuðið á Klinsmann í sjálfri Berlín, ekki Berlínarbollur þó, enda maðurinn í toppformi, kannski sykurskert vínarbrauð eða einhver heilsubiti með lífrænt ræktuðu hveiti. Allt um það, ég hlakka til að fljúga til Berlínar á fimmtudagsmorguninn og byrja að safna efni fyrir 442 á laugardagskvöld og sunnudagskvöld, þarna slær hjarta heimsins hraðast nú á annars köldum júlídögum á Íslandi.
HM 2006 í Þýskalandi Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Fótbolti „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ Íslenski boltinn Arnór í leyfi frá störfum Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Fleiri fréttir RFS - Vestri | Ævintýrið heldur áfram „Klopp er tvímælalaust rétti maðurinn“ Arnór í leyfi frá störfum Sveigja fram hjá reglum og fá Garnacho fyrst að láni Spilaði á móti Þór um síðustu helgi og var síðan lánaður til Þórs Eftirmaður Trossard er Grikki en kemur frá Belgíu Segir að ítalski fótboltinn þurfi að horfa til Spánar Barcelona kaupir Adeyemi Arsenal án lykilmanns í marga mánuði Spilar gegnum meiðsli: „Verður örugglega svolítið vont“ Meiddir Valsmenn, ævintýri Vestra og svar Stjörnunnar Gegndrepa Jón Þór bíður sólarinnar Orri og félagar tolleruðu heimsmeistarann sinn Mateus Fernandes með stórbrotið mark í fyrsta leik með Tottenham „Auðveldara að reka einn þjálfara en 23 leikmenn“ The Times: Norska sambandið mun kvarta undan Trump Er nýi Haaland íslenskur? Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Víkingarnir halda toppsætinu Segir Paredes ekki eiga að fá bann þrátt fyrir að hafa ráðist á sig Casemiro orðinn leikmaður Inter Miami Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki „Okkur vantar klárlega kantmann“ Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Hansen sá hamingjusamasti í Víkinni „Kannski ekki besta umhverfið eins og staðan var“ Sjá meira