Ótti við fuglaflensu í austur Tyrklandi 6. janúar 2006 19:07
Gangar sjúkrahúss í bænum Dogubayazit í Van-héraði í Austur-Tyrklandi voru yfirfullir í dag þar sem foreldrar flykktust þangað með börn sín ef þau sýndu nokkur flensueinkenni. Talsmaður sjúkrahússins segir að rúmlega fjörutíu hafi leitað þangað af ótta við smit. Staðfest var í dag að þriðja barnið, ellefu ára gömul stúlka, hefði látist af völdum fuglaflensu af H5N1 stofni í bænum. Fyrr í vikunni lést fimmtán ára gamall bróðir stúlkunnar og síðan fjórtán ára gömul systir þeirra. Sú sem lést í dag hefur þegar verið lögð til hinstu hvílu við hlið systkina sinna. Bróðir þeirra liggur en á sjúkrahúsi en líðan hans mun hafa skánað nokkuð. Talið er að systkinin hafi smitast eftir að þau höfðu leikið sér með höfuð af dauðum kjúkling sem mun hafa drepist úr sjúkdómnum. Samkvæmt upplýsingum frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni hefur bærinn, sem liggur nálægt landamærunum að Íran, verið settur í sóttkví og er byrjað að fella fugla á búgarðinum þar sem systkinin bjuggu. Sérfræðingar fylgjast vandlega með þróun H5N1 stofnsins þar sem óttast er að hann kunni að stökkbreytast og smitast þar með auðveldlega milli manna. Fuglar í Rúmeníu, Rússlandi og Króatíu hafa nýlega greinst með fuglaflensu af H5N1 stofninum.
Mest lesið Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Fleiri fréttir Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Sjá meira