Erlent

Fjölmargra saknað eftir að ferja sökk

Fjölmargra er saknað eftir að farþegaferja með allt að hundrað farþega sökk undan austurströnd Indónesíu í gærkvöld. Slæmt var í sjóinn á svæðinu. Tekist hefur að bjarga tveimur og leita björgunarmenn nú fleiri farþega.

Ferjur eru algengur ferðamáti milli fjölmargra eyja Indónesíu. Ferjuslys eru nokkuð tíð á svæðinu og í febrúar fórust 40 manns þegar ferja sökk á þeim stað þar sem slysið varð í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×