Dynjandi úrkoma og aurskriður í fjöllum Kasmírs 17. janúar 2006 21:55
Dynjandi úrkoma og aurskriður hafa lamað hjálparstarf í fjöllum Kasmír-héraðs síðan um helgina. Eftirlifendur jarðskálftans sem hafast við hátt uppi í fjöllum eru algerlega afskiptir. Sameinuðu þjóðirnar hafa nú keppst við að koma hjálpargögnum á skjálftasvæðin í meira en þrjá mánuði. Bærilega hefur gengið á ákveðnum svæðum en þær tugþúsundir sem búa í yfir fimmtán hundruð metra hæð eru hins vegar mjög afskiptar og hefur ekki tekist að koma neinum gögnum upp í fjöllin í þrjá daga því að flug hefur legið niðri vegna veðurs. Fyrir fólk eins og Salima Bibi, sem hefst við í tjöldum í nístingskulda lengst uppi í fjöllunum, þýðir þetta bara eitt. Slæmar aðstæður verða enn verri: „Þetta úrhelli magnar upp kuldann. Börnin geta ekki sest niður vegna hans. Við búum við árbakka því við eigum ekkert heimili lengur." Jarðfræðistofnun Pakistans spáir mikilli snjókomu næstu daga og varar við hættu á snjóflóðum ofan á allt annað. Það gæti valdið enn frekari töfum á hjálparstarfi. Það gerir svo illt verra að úrkoman veldur líka aurskriðum sem hafa teppt helstu samgönguæðar á landi. Mushtaq Awan, yfirverkfræðingur í pakistanska hluta Kasmírs, segir sprungur hafa myndast víðs vegar í jörðinni. Vatn safnist saman í þessum sprungum vegna rigninganna og þegar kvöldi breytist vatnið í snjó sem auki þrýsting. Af þeim sökum séu aurskriður afar tíðar. Eftir að úrkomunni slotar mun taka minnst þrjá daga að hreinsa vegina upp í fjöllin. Þó að enn sé ekki hægt að rekja nema nokkur dauðsföll beint til kuldanna í Pakistan er ljóst að margir muna ekki halda út við þessar aðstæður ef kuldarnir halda áfram.
Asía - hamfarir Erlent Fréttir Mest lesið „Þeir munu hengja mig“ Erlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Innlent Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Kveiktu bál á bílastæði Innlent Fleiri fréttir „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Sjá meira