Erlent

Nígerumenn ætla að gera upp við lánadrottna

Stjórnvöld í Nígeríu stefna að því að greiða margra milljarða skuld sína við hinn svokallaða Parísarklúbb sem nítján lánadrottnar tilheyra, þar á meðal Bretar, Rússar og Þjóðverjar. Þar með yrðu Nígeríumenn fyrsta Afríkuríkið til  að gera upp alþjóðlega lánadrottna. Um er að ræða greiðslu sem nemur jafnvirði rúmlega 350 milljarða íslenskra króna. Eftir það skulda þó Nígeríumenn áfram jafnvirði tæplega 400 milljarða króna. Þar á meðal eru skuldir við Alþjóðabankann og einkaaðila.

Nígeríumenn hafa heitið því að gera umtalsverðar umbætur á efnahagskerfi landsins og ekki skaðar hátt heimsmarkaðsverð á hráolíu en Nígeríumenn eru einir stærstu olíuútflyjendur heims.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×