Erlent

Segja Arla hafa tapað fjórum milljörðum á Múhameðsteikningum

Útlit er fyrir að danski mjólkuvöruframleiðandinn Arla hafi tapað um fjórum milljörðum íslenskra króna á því að vörur fyrirtækisins voru sniðgengnar í löndum múslíma vegna Múhameðsteikninganna. Frá þessu greina danskir fjölmiðlar. Hætta er á að tapið verði enn meira því víða í Mið-Austurlöndum hafa menn ekki enn tekið vörurnar aftur til sölu. Arla hefur undanfarin 40 ár byggt upp markaði á svæðinu en forsvarsmenn fyrirtækisins hyggjast ekki gefast upp og segja ekki koma til greina að hætta að selja vörur í Mið-Austurlöndum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×