Erlent

Demantspáskaegg til sölu

Súkkulaðiegg og páskahérar seljast vanalega eins og heitar lummur þegar dregur að páskum en óvíst er hvort nýtt 60 cm hátt páskagóðgæti seljist í skyndi.

Um er að ræða súkkulaðiegg sem er þakið 100 demöntum en hver þeirra er um hálft karat. Eggið, sem er metið á tæplega 7 milljónir íslenskra króna, var afhjúpað í súkkulaðibúð í Lundúnum í dag.

Eigandi verslunarinnar sagði heilsu sælkera ekki stefnt í hættu þótt einn demantur hrykki óvart niður í maga, það kæmi bara við pyngju viðkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×