Glæpum fækkar í Ísrael 11. janúar 2006 13:00
Glæpum hefur fækkað um meira en helming í Ísrael eftir að Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, var fluttur á sjúkrahús í Jerúsalem í síðustu viku vegna alvarlegs heilablóðfalls. Segir lögreglan skýringuna vera þá að glæpamenn, líkt og aðrir, sitji límdir við sjónvarpsskjáinn og fylgist með líðan forsætisráðherrans. Ísraelar bíða í ofvæni eftir fréttum af líðan Sharons sem haldið hefur verið sofandi eftir að hann fékk alvarlegt heilablóðfall á miðvikudag í síðustu viku. Glæpum hefur fækkað til muna í landinu en á meðan tilkynnt var um 865 innbrot í landinu frá miðvikudegi til föstudags í síðustu viku var tilkynnt um 1.739 innbrot á sama tímabili fyrir ári síðan. Lögreglan segir ástæðuna líklega vera að þá að glæpamennirnir líkt og aðrir landsmenn í Ísrael fylgist með baráttu forsætisráðherrans fyrir lífi sínu. Fjölmiðlar í landinu hafa ítrekað birt myndir af tveimur sonum hans, sem setið hafa við sjúkrabeð föður síns. Sharon er sagður hafa vaxið í augum almennings og líti margir upp til hans. Sharon er ekki lengur talinn í bráðri lífshættu og segja læknar hann hafa sýnt skýr merki um bata er hann hreyfði vinstri hönd sína í gær. Þá hafa þeir dregið úr deyfilyfjagjöf hans en viðbrögð Sharons eru prófuð ásamt því sem reynt er að vekja forsætisráðherrann. Svo virðist sem Ísraelar séu að gleyma hneyksli í kringum Omri Sharon, eldri sonar Sharons sem grunaður er um að hafa reynt að leyna ólöglegum fjárframlögum í kosningabaráttu föður síns árið 1999, þegar hann náði formennsku í Likud-flokknum og varð forsætisráðherraefni hans. Það virðist því vera að líðan Sharons sé það eina sem Ísraelar hugsi og tali um í dag.
Mest lesið Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Innlent Starmer segir af sér Erlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Innlent Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Innlent Ekki lengur flestir sem útskrifast af náttúrufæðibraut Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Segir þörf á fræðslu um kyrkingartak í grunnskólum Innlent Fyrstu hvalirnir skotnir í nótt Innlent Fleiri fréttir Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Sjá meira