Erlent

Öryggisráð verði að vera tilbúið til aðgerða

MYND/AP

Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði á fundi utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins í Búlgaríu í gær að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna yrði að vera reiðubúið að grípa til aðgerða gegn Íran ef stjórnvöld í Teheran yrðu ekki við kröfum aðþjóðasamfélagsins í tengslum við kjarnorkuáætlanir sínar. Utanríkisráðherra Breta sagði í vikunni að ekki kæmi til greina að ráðast á Íran vegna málsins en Bandaríkjastjórn segir þó ekkert útilokað í þeim efnum. Fjöldi manns mótmælti afstöðu Bandaríkjamanna í Sofíu, höfuðborg Búlgaríu í gær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×