Innlent

Ný Nesjavallavirkjun í notkun

Síðasti áfangi Nesjavallavirkjunar var vígður klukkan ellefu í gærmorgun. Það var þrjátíu megavatta gufuhverfill sem var tekinn í notkun í gær en fyrsti áfangi virkjunarinnar var 100 megavatta varmaframleiðsla sem var gangsett 1990. Nú er Nesjavallavirkjun komin með 300 megavatta varmaframleiðslugetu og getur hún því ein og sér séð um rúmlega þrjátíu prósent af varmaþörf höfuðborgarsvæðisins og um sextíu prósent af rafmagnsþörf þess. Uppbyggingu á Nesjavöllum er þó ekki lokið því fyrirhugað er að byggja heilsuhótel á svæðinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×