Óttast óöld á Sri Lanka 13. ágúst 2005 00:01
Neyðarlög hafa tekið gildi á Sri Lanka, eftir að utanríkisráðherra landsins var skotinn til bana í gærkvöldi. Allt er þó með kyrrum kjörum í höfuðborginni að sögn íslensks starfsmanns Alþjóða rauða krossins þar. Óttast er að morðið verði til þess að þriggja ára vopnahlé milli Tamíltígra og yfirvalda rofni. Lakshmar Kadirgamar, utanríkisráðherra, var skotinn til bana, líklega af leyniskyttu, við heimili sitt í höfuðborginni Colombo í gærkvöldi. Kadirgamar var sjálfur Tamíli, en var samt einn harðasti andstæðingur hreyfingar Tamíltígranna, sem börðust áratugum saman fyrir eigin ríki á norðurhluta eyjunnar með hryðjuverkum og skæruhernaði. Samið var um vopnahlé árið 2002, sem hefur að mestu haldið. Lögreglan hefur ásakað hreyfingu Tamíltígra um að bera ábyrgð á morðinu, en forsvarsmenn hennar neita því alfarið að hafa haft nokkuð með það að gera. Með neyðarlögunum geta yfirvöld á Sri Lanka sent hersveitir hvert sem er, þau geta haldið þeim sem grunaðir eru um aðild að hryðjuverkum án ákæru og gert húsleitir og jafnvel jafnað byggingar við jörðu, án sérstaks leyfis. Sólveig Ólafsdóttir starfar á Sri Lanka sem upplýsingafulltrúi hjá Alþjóðaráði Rauða krossins og hún segir að ... Sólveig segir ýmis teikn hafa verið á lofti fyrir morðið um að vopnahléð væri orðið brothætt. Allir séu í viðbragðsstöðu, bæði her og alþjóðastofnanir. Sri Lanka varð illa úti í flóðbylgjunni á annan í jólum. Mikið uppbyggingarstarf fer þar fram núna og nú virðist sem menn haldi einfaldlega niðri í sér andanum og voni að ekki bresti á borgarastyrjöld að nýju.
Erlent Fréttir Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Sjá meira