Erlent

Bíður með að staðfesta sáttmála

Stuðningsmenn stjórnarskár Evrópusambandsins urðu fyrir enn einu áfallinu í dag þegar Horst Köhler, forseti Þýskalands, tilkynnti að hann myndi ekki undirrita stjórnarskrársáttmálann fyrr en dómstólar í Þýskalandi hefðu staðfest að hann samræmdist stjórnarskrá Þýskalands. Bæði neðri og efri deild þýska þingsins samþykktu stjórnarskrársáttmálann í síðasta mánuði en forsetinn þarf að staðfesta hann með undirskrift. Það var Peter Gauweiler, þingmaður stjórnarandstöðunnar, sem fór fram á það að stjórnlagadómstóll fjallaði um málið en þingmaðurinn vill að þjóðin fái að greiða atkvæði um stjórnarskrána. Köhler forseti bíður nú niðurstöðu dómstólsins og mun ekki skrifa undir sáttmálann fyrr. Þessi frétt berst daginn áður en leiðtogar Evrópusambandsríkjanna hittast í Brussel til þess að ræða þá stöðu sem upp er komin innan ESB eftir að bæði Frakkar og Hollendingar höfnuðu stjórnarskránni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×