Erlent

Merkel vill ekki

Angela Merkel, formaður kristilegra demókrata og kanslaraefni í komandi kosningum í Þýskalandi, sagði í gær að hún stefni að því að sneiða hjá því að mynda svokallaða "stóra samsteypu" með jafnaðarmönnum eftir kosningarnar. Að hennar sögn væri slíkt stjórnarsamstarf "merki um stöðnun". Þrátt fyrir mikið forskot núverandi stjórnarandstöðuflokka í skoðanakönnunum hafa vangaveltur verið þrálátar um að ekki væri þar með víst að kristilegu flokkarnir mynduðu stjórn með Frjálslyndum demókrötum (FDP). Ekki væri hægt að útiloka að kristilegir, undir forystu Merkel, kysu frekar að efna til "stórrar samsteypu" en að mynda stjórn með hinum mjög svo markaðshyggjusinnaða smáflokki frjálslyndra. Öll þau sextán ár sem Helmut Kohl var við völd stýrði hann samsteypustjórn kristilegra og frjálslyndra. Á blaðamannafundi í gær brást Merkel við þessum vangeveltum og sagði: "Við stefnum að stjórnarskiptum ... og það þýðir stjórnarsamstarf CDU og FDP."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×