Búa sig undir það versta 22. september 2005 00:01
George Bush, forseti Bandaríkjanna, segir að stjórnvöld búi sig undir það versta vegna fellibylsins Rítu. Ríkisstjórar Texas og Louisiana hafa fyrirskipað tafarlausan brottflutning allra íbúa í strandhéruðum ríkjanna vegna fellibylsins. Þegar hefur meira en ein og hálf milljón manna flúið heimili sín. Fellibylurinn Ríta er orðinn fimmta stigs fellibylur og þar með öflugri Katrín þegar hún gekk yfir suðurströnd Bandaríkjanna í síðasta mánuði og olli gríðarlegri eyðileggingu. Ríta er orðinn þriðji öflugasti fellibylur sögunnar, en vindhraði hans er nú 265 kílómetrar á klukkustund. Fellibylurinn stefnir óðfluga að ströndum Texas og er búist við að miðja bylsins skelli á borginni Galveston á laugardagsmorgun auk þess sem áhrifa bylsins mun gæta meðfram ströndum Louisiana. Óttast er um afleiðingarnar þar sem Galveston er aðeins tvo og hálfan metra yfir sjávarmáli, en dragi ekki úr krafti Rítu er útlit fyrir að borgin fari á kaf í vatn. Flestir íbúar í þessari tæplega sextíu þúsund manna borg hafa þegar flúið heimili sín en nokkur fjöldi neitar að yfirgefa hættusvæðið. Kenneth Mack, lögreglustjóri í borginni, segir að ekki sé hægt að neyða fólk til að fara þótt skipun um brottflutning sé í gildi. Lögregla hafi ekki vald til að neyða fólk til að fara en hann ráðleggi fólki að koma sér burt þar sem fellibylurinn sé gríðarlegur. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Galveston verður fyrir barðinu á öflugum fellibyl því árið 1900 þurrkaðist borgin út þegar fellibylur reið yfir hana með þeim afleiðingum að um tíu þúsund manns létu lífið. Ríkisstjórar Texas og Louisiana hafa fyrirskipað tafarlausan brottflutning íbúa í strandhéruðum ríkjanna og hefur gríðarlegt umferðaröngþveiti myndast í grennd við hættusvæðin, meðal annars við Houston. Þar sem Rita hefur aðeins færst norður er óttast að Houston, fjórða stærsta borg Bandaríkjanna, geti orðið illa úti, en þar eru meðal annars stærstu olíuhreinsistöðvar landsins staðsettar. George Bush, forseti, segir ástandið mjög alvarlegt. Hann hvetur borgara til þess að hlusta á það sem yfirvöld hafi að segja og fara eftir því sem fyrir þá sé lagt. Menn biðji þess að fellibylurinn Ríta verði ekki hamfarastormur en stjórnvöld verði að vera búin undir það versta.
Erlent Fréttir Mest lesið Bifhjólamaðurinn „mikið slasaður“ Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent „Nú verður að hafa hraðar hendur“ Innlent Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Erlent Óska eftir vitnum: Missti stjórn og hafnaði á vegriði Innlent Hæstiréttur hafnar Hvammsvirkjun Innlent Kona á fimmtugsaldri í haldi vegna hnífstunguárásar Innlent Fleiri fréttir Sigldi á ísjaka á fleygiferð og komst naumlega af Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Þurfa ekki lengur að fara úr skónum í öryggiseftirlitinu Rússar gera umfangsmikla drónaárás á yfir 700 skotmörk Eyddu færslum spjallmennisins sem lofuðu Adolf Hitler 109 látnir og yfir 160 saknað Er Trump að gefast upp á Pútín? Aðeins eitt mál enn óleyst í vopnahlésviðræðum Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Náðu myndum af gesti frá annarri stjörnu Harma dauða ráðherrans en tjá sig ekki um hann Sakfelldir fyrir að kveikja í iðnaðarhúsnæði fyrir Wagner-málaliða Hafnar gagnrýni á samskipti við lyfjarisa í faraldrinum Bresk stjórnvöld hyggja á aðgerðir gegn trúnaðarsamningum Ekki fleiri greinst með mislinga í Bandaríkjunum í 33 ár Vill safna íbúum Gasa í lokaðar búðir og flytja síðan á brott Bandamenn fá hótunarbréf um 25 til 40 prósent toll „Þeir verða að geta varið sig“: Hættir við að hætta vopnasendingum Yfir hundrað látnir í Texas Ellefu dagar milli nýrra jarðganga í Færeyjum Samgönguráðherrann lést daginn sem Pútín rak hann Pútín rekur samgönguráðherrann eftir miklar raskanir á flugi Eldgos í Lewotobi Laki Laki í Indónesíu Líkir tilætlunum Musk við lestarslys Fundin sek um að myrða ættingja með eitruðum sveppum Á níunda tug látin í hamfaraflóðum Friðarviðræður hafnar í Katar og Netanyahu heldur til Washington Banamaður ráðherra fær að stíga fæti út fyrir fangelsið Um sjötíu látnir í flóðunum og stúlknanna enn leitað Hegseth hafi logið því að gengið sé á vopnabirgðir Bandaríkjanna Sjá meira