Erlent

Öryggisráðherra Mexíkó látinn

Öryggismálaráðherra Mexíkó og átta aðrir fórust í gær, þegar þyrla hrapaði í fjallgarði vestur af Mexíkó. Enginn komst lífs af. Ráðherrann var einn nánasti samstarfsmaður Vicente Fox forseta landsins og sá meðal annars um kosningabaráttu hans þegar hann komst fyrst til metorða sem ríkisstjóri. Fox sagði í sjónvarpsávarpi í gær að mennirnir um borð í vélinni hefðu unnið þrekvirki í að gera Mexíkó að öruggara landi og hann myndi heiðra minningu þeirra með því að leggja enn meira púður í að gera landið friðsælt og öruggt. Ekki er enn vitað hvað olli því að þyrlan hrapaði, en veðurskilyrði voru slæm á slysstað og blindaþoka.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×