Hryllingssögur hafi verið ýktar 28. september 2005 00:01
Komið hefur í ljós að hryllingssögur frá New Orleans í kjölfar þess að fellibylurinn Katrín reið yfir suðurströnd Bandaríkjanna voru orðum auknar eða jafnvel uppspuni frá rótum. Þetta þykir áfall fyrir bandaríska fjölmiðla. Fyrstu dagana eftir yfirreið fellibylsins Katrínar voru bandarískir fjölmiðlar uppfullir af frásögnum af vopnuðum gengjum sem færu um New Orleans og myrtu og nauðguðu fólki ásamt því að stela öllu steini léttara. Sagt var að lík hlæðust upp í Superdome-íþróttahöllinni og ráðstefnuhöll borgarinnar, en þar leituðu tugþúsundir manna skjóls fyrir fellibylnum. Breska blaðið Independent greinir hins vegar frá því í dag að nú, einum mánuði eftir að fellibylurinn Katrín gekk yfir, hafi nokkrir fréttamenn heimsótt hina meintu hörmungarstaði aftur. Komið hafi í ljós að hinar fjölmörgu sögur af morðum, nauðgunum og gripdeildum í höllunum hafi verið orðum auknar ef ekki algjörlega ósannar. Í Superdome-höllinni létust til að mynda sex manns, þar af fjórir af náttúrulegum orsökum. Einn lést af ofneyslu fíkniefna og annar svipti sig lífi. Þá greindi bandaríska stórblaðið New York Times frá því fyrir um mánuði að 24 hefðu látist í ráðstefnuhöllinni í New Orleans en við nánari eftirgrennslan reyndust þeir fjórir, þar af var einn sem virtist hafa verið myrtur. Þá hefur lögregla staðfest að aðeins fjögur morð hafi verið framin í vikunni eftir yfirreið Katrínar, en það er ekki fjarri meðaltali morða í borginni á viku. Independent segir að sumar ýkjusagnanna megi rekja til skorts á samskiptum enda hafi mikil ringulreið ríkt í borginni eftir hamfarirnar. Þá hafi fjölmiðlar verið of uppteknir af því af mála sem svartasta mynd af ástandinu og ekki lagt nógu mikla vinnu í að fá hluti staðfesta. Þykir þetta því nokkuð áfall fyrir fjölmiðla vestan hafs sem mega síst við því að trúverðugleiki þeirra rýrist meira, en þeir fengu sumir bágt fyrir frammistöðu sína í aðdraganda Íraksstríðsins og eftir harmleikinn í Columbine-menntaskólanum.
Erlent Fréttir Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Fleiri fréttir Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september Sjá meira