Erlent

New Orleans að vakna af dvala

Ray Nagin, borgarstjóri New Orleans, lýsti því yfir í gær að stórir hlutar borgarinnar yrðu opnaðir fyrir aðgangi íbúa í næstu viku. Gamli bærinn, Franska hverfið, yrði opnaður viku eftir það. "New Orleans-borg mun byrja að draga andann á ný," sagði hann. Borgarstjórinn gat gefið þessa tilkynningu út eftir að árangur var farinn að verða sýnilegur í að koma á rafmagni og gera við lagnakerfi. Daginn áður voru birtar niðurstöður úr tilraunastofuprófunum sem sýndu að þótt enn væri hættulega mikið af sýklum og mengunarefnum í flóðvatninu væri loftið hættulaust til innöndunar. Í hverfunum sem opnuð verða í þessari fyrstu lotu bjuggu 182.000 af alls nærri hálfri milljón íbúa New Orleans. Til stendur að opna Franska hverfið 26. september. "Franska hverfið stendur hátt uppi og er þurrt og okkur virðast rafveitumál þar í góðu lagi," sagði Nagin. "En þar sem sögulegt verðmæti þess er svo mikið viljum við ganga fullkomlega úr skugga um að allt sé í lagi áður en við setjum strauminn aftur á, því ef eldur kæmi upp þarna þar sem gömul timburhúsin standa þétt saman gætum við tapað á augabragði stórum hluta þess sem okkur er kært í þessari borg," sagði hann. Ferðaþjónusta hefur lengi verið aðaltekjulind New Orleans, og reyndar Louisiana-ríkis alls, og Franska hverfið hefur verið þungamiðjan í þeim atvinnuvegi á svæðinu. En vegna þess hve borgin er öll illa útleikin eftir fellibylinn, flóðið, eldsvoða og gripdeildir er ljóst að það mun taka ár að koma lífinu í þessari "perlu Suðurríkjanna" í samt lag. George W. Bush Bandaríkjaforseti, sem sætt hefur harðri gagnrýni vegna slælegra viðbragða stjórnvalda við hamförunum, var væntanlegur til New Orleans í gær til að flytja þaðan sjónvarpsávarp til þjóðarinnar, það fyrsta sem hann flytur frá því hamfarirnar dundu yfir. Búist var við að hann boðaði í ávarpinu gríðarvíðtækar ráðstafanir til að styðja við endurreisnarstarfið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×