New Orleans að vakna af dvala 15. september 2005 00:01
Ray Nagin, borgarstjóri New Orleans, lýsti því yfir í gær að stórir hlutar borgarinnar yrðu opnaðir fyrir aðgangi íbúa í næstu viku. Gamli bærinn, Franska hverfið, yrði opnaður viku eftir það. "New Orleans-borg mun byrja að draga andann á ný," sagði hann. Borgarstjórinn gat gefið þessa tilkynningu út eftir að árangur var farinn að verða sýnilegur í að koma á rafmagni og gera við lagnakerfi. Daginn áður voru birtar niðurstöður úr tilraunastofuprófunum sem sýndu að þótt enn væri hættulega mikið af sýklum og mengunarefnum í flóðvatninu væri loftið hættulaust til innöndunar. Í hverfunum sem opnuð verða í þessari fyrstu lotu bjuggu 182.000 af alls nærri hálfri milljón íbúa New Orleans. Til stendur að opna Franska hverfið 26. september. "Franska hverfið stendur hátt uppi og er þurrt og okkur virðast rafveitumál þar í góðu lagi," sagði Nagin. "En þar sem sögulegt verðmæti þess er svo mikið viljum við ganga fullkomlega úr skugga um að allt sé í lagi áður en við setjum strauminn aftur á, því ef eldur kæmi upp þarna þar sem gömul timburhúsin standa þétt saman gætum við tapað á augabragði stórum hluta þess sem okkur er kært í þessari borg," sagði hann. Ferðaþjónusta hefur lengi verið aðaltekjulind New Orleans, og reyndar Louisiana-ríkis alls, og Franska hverfið hefur verið þungamiðjan í þeim atvinnuvegi á svæðinu. En vegna þess hve borgin er öll illa útleikin eftir fellibylinn, flóðið, eldsvoða og gripdeildir er ljóst að það mun taka ár að koma lífinu í þessari "perlu Suðurríkjanna" í samt lag. George W. Bush Bandaríkjaforseti, sem sætt hefur harðri gagnrýni vegna slælegra viðbragða stjórnvalda við hamförunum, var væntanlegur til New Orleans í gær til að flytja þaðan sjónvarpsávarp til þjóðarinnar, það fyrsta sem hann flytur frá því hamfarirnar dundu yfir. Búist var við að hann boðaði í ávarpinu gríðarvíðtækar ráðstafanir til að styðja við endurreisnarstarfið.
Erlent Fréttir Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Sjá meira