Hafsíld húkkuð á færi 9. ágúst 2005 00:01
Jón Eiríksson, Drangeyjarjarl og skipstjóri hjá Drangeyjarferðum, var heldur betur hissa þegar leiðsögumaður fjögurra manna ferðamannahóps húkkaði hafsíld um borð í skip hans á dögunum. "Það hefur nú ekkert orðið vart við síld hérna og mér fannst skrítið að hann skyldi veiða þetta á færi," segir Jón hressilega en síldin góða veiddist rétt fram af Hafnargarðinum. Hann telur þó ekki víst að þetta sé til marks um að síldin sé að koma aftur. "Ég sá nú ekki vaðandi síld en það lóðaði þarna talsvert," segir Jón, sem veit til þess að síld hafi veiðst á færi en ekki í seinni tíð. "Hvort þetta er Norðansíldin sjálf skal ég ekki segja um enda fannst mér hún heldur lítil til þess," segir Jón, sem gladdist mjög að sjá síld í Skagafirði því hún hefur varla sést vaðandi þar síðan árið 1950. "Þá var mikið af henni og svartur sjór stundum," segir Jón en hann man til þess að hafa talið 73 síldarskip á firðinum þegar hann var ungur drengur á fjórða áratugnum. "Maður fær smá fiðring þegar maður sér svona," segir Jón hlæjandi og en segist þó engin vísindamaður í síldinni.
Fréttir Innlent Mest lesið Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Innlent Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Innlent Úkraína og Evrópa óttast meðvirkni Trump Erlent Eiganda Trump Burger verður sparkað úr landi Erlent Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Innlent Bjartsýn á að Trump nái árangri með Pútín Erlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Innlent Alelda bíll á Emstruleið Innlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Fleiri fréttir Sendiherra á Íslandi á grundvelli misskilnings Pallaball fram á rauðanótt: „Farðu og finndu fólkið þitt!“ Lögreglan tekur leigubílamálin fastari tökum Vond staða Úkraínu, furðukenning um geimverur og Gleðigangan Taka þurfi ráðgjöf Hafró til endurskoðunar Alelda bíll á Emstruleið Vond niðurstaða Úkraínu, ásakanir á hendur sáttasemjara og síðasta hlaupið Mikill meirihluti hefur áhyggjur af stríðsátökum Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Ekki stafi lengur tilvistarógn af Hamasliðum Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Féll fjóra metra í vinnuslysi í Kópavogi Ómeðvitaðir ferðamenn í Reynisfjöru, síbökuð hjón og tölvuspil fram á nótt Enginn árangur af „veiða og sleppa“ aðferðinni Flokkarnir dæla milljónum í áróður á Meta Hræðast að fleiri en einn fari í sjóinn Átökin „hvorki vegna né þrátt fyrir“ áfengissöluna Heitavatnslaust í Laugardal Lést við flúðasiglingar í Vestari-Jökulsá Langflestir telja sig búa á góðum stað fyrir samkynhneigða Áttu ekki von á neinu veseni og viðbúnaður eftir því Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Maður féll í Vestari-Jökulsá Fangar í einangrun vegna sama máls noti ekki sama útisvæði Hundarnir þegar aflífaðir en ákvörðun um lógun ólögmæt Samskipti fanga í einangrun, tapsárir Danir og drottning Gleðigöngunnar Allir fundir við ESB „fyrst og fremst“ hagsmunagæsla Telja að lífvörður myndi aðeins gera ferðamenn kærulausari Sjá meira