Fella niður útflutningsstyrki 18. desember 2005 12:00 Þúsundir hafa mótmælt auknu frjálsræði í verslun með landbúnaðarafurðir. MYND/AP
Ríkari þjóðir heims verða að fella niður alla útflutningsstyrki í landbúnaði fyrir árslok 2013 samkvæmt samkomulagi sem samningamenn á fundi Alþjóða verslunarstofnunarinnar komust að snemma í morgun. Eftir miklar og erfiðar samningaviðræður komust fulltrúar helstu viðskiptablokka heims komust í morgun að samkomulagi um að fella niður útflutningsstyrki í landbúnaði innan átta ára. Samkomulagið gengur þó skemur en fulltrúar ýmissa þróunarríkja vonuðust til, þeir vildu fella niður útflutningsstyrki fyrir árslok 2010. Á sama tíma og fundarmenn sögðust hafa náð samkomulagi efndu andstæðingar frjálsrar verslunar með landbúnaðarafurðir til fjölmennra mótmæla í Hong Kong. Mótmælin í morgun voru þó öllu friðsamlegri en mótmælin í gær en þá voru nokkur hundruð manns handteknir. Auk niðurfellingar útflutningsstyrkja innan átta ára er í samkomulaginu ákvæði um að þegar á næsta ári verði hætt að greiða útflutningsstyrki til bómullarframleiðenda. Þá á að ljúka núverandi samningaferli fyrir þrítugasta apríl á næsta ári en fundalotan hefur staðið með hléum í fjögur ár. Peter Mandelson, sem fer með alþjóðaviðskipti í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins sagði samkomulagið ekki til marks um stórkostlegan árangur en sagði þó að það væri ásættanlegt og kæmi í veg fyrir að fundurinn í Hong Kong flokkaðist undir algjör mistök. Samkomulagið er þó ekki í höfn fyrr en fulltrúar allra eitthundrað fjörutíu og níu aðildarríkja Alþjóða viðskiptastofnunarinnar greiða atkvæði um það síðar í dag. Atkvæðagreiðslur innan stofnunarinnar byggja á samþykki allra og því nægir andstaða eins ríkis til að ekkert verði úr samkomulaginu. Samkomulagið hefur ekki bein áhrif á stuðning við íslenskan landbúnað þar sem útflutningsstyrkir til íslenskra bænda voru felldir niður árið 1990.
Erlent Fréttir Mest lesið Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Innlent Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Erlent Hvalur skaut upp höfði upp við bryggjuna: „Þetta var alveg magnað“ Innlent „Allt uppselt“ af símum eftir rigninguna Innlent Slysið á sama stað og við sömu aðstæður og fyrri banaslys í fjörunni Innlent Maður lést eftir fall af svölum á tónleikum Oasis Erlent Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Erlent Reiður Trump segir Schumer að fara til helvítis Erlent Spennandi traktorstorfæra á Flúðum Innlent Segir „erfiðara“ að náða Diddy eftir „hræðilegar yfirlýsingar“ Erlent Fleiri fréttir Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Maður lést eftir fall af svölum á tónleikum Oasis Rússneskt eldfjall gýs í fyrsta sinn í sex hundruð ár Segir „erfiðara“ að náða Diddy eftir „hræðilegar yfirlýsingar“ Leiddi fordæmalausa bænastund á Musterishæð Eldur í olíugeymslu í Sochi eftir drónaárás Reiður Trump segir Schumer að fara til helvítis Grunaður um að myrða heila fjölskyldu en skilja ungabarnið eftir á lífi Beinaber gísl látinn grafa eigin gröf á Gasa Að bugast á hálf nöktum ferðamönnum og beita sektum „Fordæmalaus hitabylgja“ leikur Skandínava grátt Maxwell flutt í þægilegra fangelsi Breyti engu á jörðu niðri að viðurkenna sjálfstæði Palestínu Trump ræsir út kjarnorkukafbáta eftir „ögrandi“ ummæli Rússa „Clinton áætlunin“ líklega tilbúningur rússneskra njósnara „Ekki taka. Endurheimta. Þetta er okkar“ Arabaríkin sameinast um afvopnun Hamas og fordæmingu á árásunum 7. október Bukele ryður leiðina að einræði í El Salvador Freista þess að hindra að Bandaríkin fargi miklu magni getnaðarvarna Hvatti ríki til að stuðla að stjórnarskiptum í Rússlandi Tollar á vörur frá Íslandi verða 15 prósent samkvæmt forsetatilskipun Leynilega geimfarið sent á sporbraut í áttunda sinn Samþykkja ný lög um spillingarrannsóknir eftir mótmæli Múhameð eykur forskotið og enginn nefndur Keir Gera miklar breytingar á kjördæmum Texas, að beiðni Trumps Suðureyjargöng skilyrt hækkun eftirlaunaaldurs Kínverjar leita leiða til að granda gervihnöttum Musks Í áfalli eftir að hafa fengið bréf frá árásarmanninum inn um lúguna Dregur í land og segir Starmer og félaga verðlauna Hamas Sjá meira