Vildu horfa í augu morðingja sona þeirra 20. desember 2005 19:19
Fimm Serbar, sem voru kvikmyndaðir þegar þeir myrtu sex múslíma í Bosníu árið 1995, voru leiddir fyrir rétt í Belgrad í dag. Mæður hinna myrtu eru viðstaddar réttarhöldin. Þær sögðust vilja horfa í augu mannanna sem myrtu syni þeirra. Myndir af morðunum vöktu mikinn óhug, þegar þær voru sýndar við stríðsglæparéttarhöldin yfir Slobodan Milosevits, í sumar. Á myndunum sjást Serbarnir reka sex unga múslima á undan sér, með hendur bundnar fyrir aftan bak. Múslimarnir voru allir óbreyttir borgarar. Þeir eru látnir stilla sér upp, í fjallshlíð og svo er hafin skothríð á þá með hríðskotarifflu. Fjórir þeirra falla, helsærðir. En tveim er hlíft í þessari umferð. Þeir eru látnir bera lík félaga sinna í nærliggjandi hlöðu, og svo eru þeir einnig skotnir til bana. Þetta gerðist í grennd við bæinn Srebrenitsa, en talið er að yfir áttaþúsund múslimar hafi verið myrtir, eftir að serbar náðu bænum á sitt vald. Hann átti þó að vera einn af griðastöðum Sameinuðu þjóðanna, og undir vernd gæsluliða Sameinuðu þjóðanna. Það var Ratko Mladic, hershöfðingi borníuserba sem stjórnaði aðgerðum í Strebrenitsa. Hann er eftirlýstur fyrir stríðsglæpi, og glæpi gegn mannkyninu, en hefur tekist að fara huldu höfði í tíu ár, ásamt Radovan Karadits, sem var pólitískur leiðtogi serba í Bosníu.
Erlent Fréttir Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Fleiri fréttir Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Sjá meira