Erlent

Þremur rænt á Gazaströndinni

Lögreglumenn í Gazaborg.
Lögreglumenn í Gazaborg. MYND/AP

Þremur mönnum var rænt á suðurhluta Gaza fyrir stundu. Ekki liggur fyrir hverrar þjóðar mennirnir eru né hverjir stóðu fyrir mannráninu. Fyrr í dag var fimm Þjóðverjum rænt í arabaríkinu Yemen. Talsmaður þýskra stjórnvalda greindi frá þessu en lét ekkert nánar uppi um atvikið.

Mannránið er það þriðja í Yemen þar sem vestrænum ferðamönnum er rænt á þessu ári. Í síðustu viku var tveimur Austurríkismönnum og tveimur Svisslendingum rænt og kröfðust ræningjarnir að ættingjum þeirra yrði sleppt úr fangelsi. Ekkert varð úr því og var gíslunum sleppt, heilum á höldnu. Ekki er vitað hvaða kröfur mannræningjarnir hafa sem rændu Þjóðverjunum í dag.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×