Erlent

Óvenjumargar konur eiga von á sér

Indónesísk kona heldur hér á barni sínu sem lifði hamfarirnar fyrir ári af.
Indónesísk kona heldur hér á barni sínu sem lifði hamfarirnar fyrir ári af. MYND/AP

Óvenjumargar konur eiga von á barni í Ache-héraði í Indónesíu þar sem tugþúsundir barna fórust í holskeflunni.

Fæðingalæknar og ljósmæður segja að þau þurfi enga tölfræði til þess að vita að miklu fleiri konur eigi von á barni, en venjulegt sé. Þau telja að þetta sé eðlilegt náttúrulögmál.

Margir þeirra sem lifðu af misstu alla sína fjölskyldu í flóðbylgjunni; börn, foreldra, systkini og maka. Það er talið eðlilegt að fólk vilji tryggja sér á nýjan leik það öryggi og hlýju sem felist í fjölskylduböndum.

Á þriðja hundrað þúsund manna fórust í flóðbylgjunni 26. desember, á síðasta ári, og talið er að að meira en þriðjungur þeirra hafi verið börn.

"Við misstum svo marga í flóðbylgjunni," nú fáum við fleiri, segir Nurba-íti, nýbökuð móðir lítillar telpu.

Önnur kona er Asmika, sem er tuttugu og þriggja ára gömul. Hún missti foreldra sína og þrjú systkini, í flóðunum. Hún var einmana og hrædd, og í febrúar síðastliðnum giftist hún manni sem hún þekkti aðeins lítillega, í fjöldabrúðkaupi.

Asmika á nú von á barni. "Ég er sorgmædd yfir að hafa misst foreldra mína og systkini, segir hún. En ég er líka glöð yfir að ég á von á barni. Þá mun ég eiga vin."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×