Skammarlegt hversu lítil hjálp hefur borist til Pakistans 23. desember 2005 15:21 Tvö af minnstu fórnarlömbum skjálftans sem reið yfir Kasmír í byrjun október. MYND/AP
Minna en helmingur þess fjár sem þörf er á í Kasmír hefur skilað sér. Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir skammarlegt hversu lítil hjálp hafi borist og óttast að tugþúsundir farist í vetrarkuldanum á næstu vikum. Talsmenn hjálparstofnana í Pakistan ítrekuðu í gær nauðsyn þess að gripið yrði til aðgerða þegar í stað. Minna en helmingur þess fjár sem þörf er á í Kasmír hefur borist og segja hjálparstarfsmenn í landinu að stórhætta sé á því að tugþúsundir farist nú þegar vetur er genginn í garð. Talið er að allt að þrjár milljónir manna hafi misst heimili sín í jarðskjálftanum sem gekk yfir þann áttunda október síðastliðinn, en nærri níutíu þúsund manns fórust þá. Það þykir lán í óláni að veturinn hefur verið óvenju mildur það sem af er og næstu daga er einnig spáð meinlitlu veðri. Þó geti farið að kólna hratt og fyrir það sé fólk upp til fjalla síður en svo reiðubúið. Sameinuðu þjóðirnar segja að miklar líkur séu á að jafn margir og jafnvel fleiri farist en í jarðskjálftanum sjálfum. Mun betur gekk að fá hjálp eftir flóðbylgjurnar í Asíu á annan dag jóla í fyrra en nú og er ástæðan talin vera sú að þá létust hundruð Evrópubúa, þar á meðal um 500 Svíar, og varð samkenndin því mun meiri en hún er nú.
Erlent Fréttir Mest lesið Trans kærasta Robinsons hafi verið „skelfingu lostin“ Erlent Lögreglumenn með brotnar tennur og harðorður Elon Musk Erlent Þrír handteknir á samkvæmi Vítisengla Innlent Ekki blettur á ferlinum að missa vinnuna Innlent Jóhannes Valgeir er látinn Innlent Halla mun funda með Xi Jinping Innlent Tæplega fimmtíu komast ekki um borð eftir að neyðarrenna var opnuð fyrir mistök Innlent Þrír horfnir ferðamenn í Færeyjum Erlent Rússnesk flygildi rufu lofthelgi NATO Erlent Í fangaklefa grunaðir um ólöglega dvöl Innlent Fleiri fréttir Fordæmir notkun fánans í þágu ótta og rasisma Trans kærasta Robinsons hafi verið „skelfingu lostin“ Lögreglumenn með brotnar tennur og harðorður Elon Musk Þrír horfnir ferðamenn í Færeyjum Rússnesk flygildi rufu lofthelgi NATO Drónaárás á eina stærstu olíuvinnslu Rússlands Skipar NATO-ríkjum að hætta að kaupa olíu af Rússum Á þriðja tug slasaðir eftir gassprengingu í Madríd Hundrað þúsund mótmæla hælisleitendum í Lundúnum „Ég hélt að hann yrði forstjóri“ Útnefnd forsætisráðherra Nepal fyrst kvenna Ekkja Kirk tjáir sig eftir morðið Öllum sem geri lítið úr morðinu „verði refsað“ Hefja frumkvæðisathugun á dauðsföllum tengdum bóluefnum Allsherjarþingið ályktar um palestínskt ríki NATO eflir varnir í austri Erna Solberg hættir Hinn 22 ára Tyler Robinson grunaður um morðið á Kirk Trump segist nokkuð viss um að grunaður morðingi hafi verið handsamaður Bandaríkjastjórn fargar getnaðarvörnum fyrir 9,7 milljónir dala Stjórnvöld höfða mál á hendur Uber vegna mismununar gegn fötluðum Alríkislögreglan birtir myndskeið af morðingjanum Dæmdur í tuttugu og sjö ára fangelsi fyrir valdaránstilraun Rándýrar herþotur og flugskeyti gegn ódýrum drónum Breskur sendiherra rekinn vegna tengsla við Epstein Hver var Charlie Kirk? Vaktin: Vopnið fundið og FBI dreifir myndum Neyðarfundur verði boðaður í Öryggisráði SÞ Vill draga Netanyahu fyrir dóm vegna árásarinnar í Doha Trump segir öfga-vinstrið bera ábyrgð á morðinu Sjá meira