Krefjast afsagnar Göran Persson 2. desember 2005 14:29 Frá hamfarasvæðunum í Suðaustur-Asíu í fyrra. MYND/AP
Mikið uppnám hefur orðið í sænskum stjórnmálum eftir að sérstök rannsóknarnefnd, sem fór yfir viðbrögð stjórnvalda vegna flóðbylgjunnar sem reið yfir Suðaustur-Asíu á annan dag jóla í fyrra, kynnti skýrslu sína í gær. Skýrslan fer hörðum orðum um viðbrögð ríkisstjórnarinnar og afsagnar forsætis- og utanríkisráðherra er nú krafist. Ríkisstjórnin er harðlega gagnrýnd í skýrslunni fyrir aðgerðaleysi eftir að 30 þúsund sænskir ríkisborgarar lentu í hremmingum í kjölfar flóðbylgjunnar í Tælandi. Yfir 500 Svíar létust og 1500 slösuðust og er ríkisstjórnin sögð hafa brugðist allt of seint við til að koma fólki til hjálpar. Gagnrýnin beinist fyrst og fremst gegn Göran Persson forsætisráðherra og Lailu Freivalds utanríkisráðherra sem talin eru hafa tekið jólaleyfi sitt og skemmtanir fram yfir hagsmuni sænskra ríkisborgara á neyðarstund. Í skýrslunni er meðal annars sagt frá samskiptum forsætisráðherra Svíþjóðar og Íslands vegna fluttnings slasaðra Svía frá Tælandi. Níu dagar liðu þó frá því flóðbylgjan reið yfir og þar til flugvél Loftleiða með læknum og hjúkrunarfólki flutti 85 slasaða til Svíþjóðar. Í millitíðinni hafði sænska utanríkisráðuneytið leytað eftir aðstoð annarra þjóða, meðal annars Bandaríkjanna, sem ekki gátu veitt aðstoð. Stjórnarandstaðan krafðist í gær afsagnar forsætis- og utanríkisráðherra, og hið sama gera margir leiðarahöfundar sænskra dagblaða í dag. Persson segir þó að enginn muni segja af sér vegna málsins, en bað sænsku þjóðina afsökunar í gær á mistökum ríkisstjórnarinnar. Það er þó óvíst að það eitt muni duga til að lægja gagnrýnisraddir.
Erlent Fréttir Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira