Erlent

Rússarnir stungu af

Furðuleg uppákoma átti sér stað á Barentshafi í gær þegar rússneskur togari með norska veiðieftirlitsmenn innanborðs óhlýðnaðist skipunum norsku strandgæslunnar og sigldi yfir í rússneska efnahagslögsögu. Norðmenn hafa íhugað að beita fallbyssum til að stöðva skipið. Togarinn var staðinn að ólöglegum veiðum með undirmálsfisk og ólögleg veiðarfæri á laugardag. Á sunnudaginn breytti hann hins vegar stefnu og lét áhöfnin sig engu skipta þótt norskir veiði-eftirlitsmenn væru enn um borð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×