Erlent

Eitt barn sem fannst í rústunum

Stúlka fannst í dag í rústum byggingar nærri Balakot-borg sem hrundi í jarðskjálftanum sem reið yfir Kasmír um síðastliðna helgi. Fyrr í dag greindi Reuters-fréttastofan frá því að fjögur börn hefðu fundust á lífi en misskilningurinn byggðist á því að þrjú börn, sem sögð eru systkini stúlkunnar, tilkynntu hjálparstarfsmönnum um hvar hana væri að finna í rústunum. Ekki var greint frá aldri telpunnar. Átta dagar eru síðan skjálftinn gekk yfir sem talinn er hafa kostað um 40 þúsund manns lífið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×