Erlent

Börn finnast á lífi í rústunum

Fjögur börn fundust á lífi í dag í rústum byggingar nærri Balakot-borg sem hrundi í jarðskjálftanum sem reið yfir Kasmír um síðastliðna helgi. Yngsta barnið er sagt vera aðeins nokkura mánaða gamalt og það elsta níu ára. Það má teljast kraftaverki líkast að svo ung börn finnist á lífi í rústunum, átta dögum eftir að skjálftinn gekk yfir. Um 40 þúsund manns eru talin hafa látist í jarðskjálftanum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×