Erlent

Háttsettur Palestínumaður drepinn

Palestínumaður, sem sagður var háttsettur innan hinna herskáu samtaka „Íslamska jíhad", var drepinn af ísraelskum hersveitum norðarlega á Vesturbakkanum í dag. Ísraelsk útvarpsstöð hefur þetta eftir heimildarmanni úr röðum Palestínumanna. Að hans sögn var maðurinn króaður af af mönnum úr sérsveit Ísralesmanna, skammt suður af borginni Jenín, og skotinn til bana.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×