Erlent

Ráðist á Kandahar-flugvöll

Tvær breskar orrustuþotur löskuðust í flugskeytaárás skæruliða talibana í Afganistan á föstudaginn var. Frá þessu var greint í morgun. Árásin var gerð á Kandahar-flugvöll í suðurhluta Afganistans. Á þriðja tug afganskra hermanna, fimm afganskir hjálparstarfsmenn og í það minnsta tveir bandarískir hermenn hafa fallið í árásum talibana á undanförnum vikum. Árásum talibana hefur fjölgað töluvert undanfarið í Kandahar og nærliggjandi héruðum, þar sem þeir áttu sér áður bakland.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×