Erlent

Talning atkvæða hafin í Írak

Talning er hafin eftir kosningu um stjórnarskrá Íraks í gær. Örlög stjórnarskrárinnar eru í höndum nokkurra héraða sem geta fellt hafa með því að segja nei. Tveir þriðju hlutar kjósenda í þremur héruðum þurfa að hafna stjórnarskránni til að fella hana. Gríðarleg öryggisgæsla varð til þess að uppreisnar- og hryðjuverkamenn gátu ekki staðið við hótanir um blóðbað og sögðu talsmenn Sameinuðu þjóðanna kosningarnar hafa farið ótrúlega friðsamlega fram. Íbúar Bagdad-borgar vöknuðu þó við sprengjugný í morgun þegar ráðist var á græna svæðið, þar sem ríkisstjórnin hefur aðsetur sitt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×