Einn öflugasti skjálfti sögunnar 8. október 2005 00:01
Skjálftinn mældist 7,6 stig á Richter og átti upptök sín um áttatíu kílómetra norðnorðaustur af höfuðborg Pakistans, Islamabad. Klukkan var að nálgast níu í morgun að staðartíma þegar hann reið yfir og því margir heimavið. Pakistanski hluti Kasmírhéraðs virðist hafa orðið verst úti, en þar þurrkuðust heilu þorpin hreinlega út. "Tjónið er mest í fjallahéruðum þar sem skriðuföll urðu og húsin voru aðallega úr leir eða öðru óvönduðu efni. Á vissum svæðum hafa heilu þorpin hrunið og heilu bæirnir horfið," sagði Shauket Sultan, talsmaður pakistanska hersins. Ljóst er að marga daga mun taka að meta nákvæmlega hversu mikið tjónið er, en það er gríðarlegt, bæði manntjón og eignatjón. Erfiðar samgöngur og fjarskipi hamla hjálparstarfi nokkuð, mörg þorp eru algerlega sambandslaus við umheiminn en herinn hefur sent þyrlur á vettvang til að koma hjálpargögnum til þurfandi. Sjúkrahús eru yfirfull af slösuðu fólki og fólki sem leitar ástvina sinna. Jarðskjálftar eru tíðir á þessum slóðum, þar sem eru flekamót Indlandsflekans og Evrasíuflekans. Jón Gunnarsson, formaður Landsbjargar segir að vel hafi verið fylgst með gangi mála frá því seint í nótt og þegar hafi verið sett tilkynning inn á samskiptavef alþjóðlegra björgunarsveita um að íslenska sveitin sé reiðubúin að halda til hjálparstarfa um leið og þess sé óskað. Imrahim Hussein er starfsmaður Rauða hálfmánans í Islamabad og fann svo sannarlega fyrir skjálftanum í nótt. "Í einu hverfinu hrundu tvær íbúðarblokkir. Um 200 til 300 manns grófust í rústunum. Brakið var á hæð við þriggja hæða hús," sagði Hussein. Hann segist ekki viss um að óskað verði eftir alþjóðlegri aðstoð - fyrst um sinn verði sá búnaður notaður sem til sé á svæðinu.
Erlent Fréttir Mest lesið Setur „stærsta samning í sögunni“ í uppnám Erlent Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Innlent Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Innlent Líkir kærunni við „faglega aftöku“ Innlent Evrópuleiðtogar bregðast við: „Við látum ekki fjárkúga okkur“ Erlent Ekki útilokað að Ísland sæti Grænlandstollum Erlent Einn endaði á hliðinni og þrjú klemmdust á milli Innlent Macron: „Engin ógnun eða hótun mun hafa áhrif á okkur“ Erlent „Í mínum huga eru þetta klárar ærumeiðingar“ Innlent Ísland standi með Grænlandi og Danmörku Innlent Fleiri fréttir Segir þúsundir hafa dáið á grimmilegan máta Setur „stærsta samning í sögunni“ í uppnám Evrópuleiðtogar bregðast við: „Við látum ekki fjárkúga okkur“ Macron: „Engin ógnun eða hótun mun hafa áhrif á okkur“ Ekki útilokað að Ísland sæti Grænlandstollum Þyrfti líklega að leggja toll á allt Evrópusambandið Reyna að rjúfa nettenginu endanlega Boðar 10 prósenta toll á Norðurlönd, Breta, Frakka, Þjóðverja og fleiri Þúsundir baula á bandaríska sendiherrann Ítalar lögðu hald á skip frá Rússlandi Enn deilt um Epstein-skjölin: Dómsmálaráðuneytið segir dómara ekki mega skipa óháðan eftirlitsaðila Bein útsending: Flytja fimm þúsund tonna eldflaug á skotpall fyrir tunglskot Danmörk „pínulítið land“ með „pínulítinn her“ Hótar tollum á ríki sem standa með Grænlendingum Hafa náð einu og hálfu prósenti af Úkraínu á þremur árum Milljónir Bandaríkjamanna hafi þungar áhyggjur vegna Grænlands Yfirvöld sögð rukka háar fjárhæðir fyrir afhendingu líka mótmælenda Fyrrverandi forseti dæmdur í fimm ára fangelsi „Þetta er ekki það sem við samþykktum“ Tók við verðlaunapeningnum og hyggst eiga hann Hafi afhent Trump Friðarverðlaun Nóbels Krefjast enn að fá að senda sérsveitarmenn til Mexíkó Veiki geimfarinn kominn aftur til jarðar Tóku enn eitt skipið Trump hótar að siga hernum á mótmælendur Kennir Selenskí enn og aftur um Ólafur Ragnar við CNBC: Afleiðingarnar „gífurlegar“ ef Bandaríkin tækju Grænland með valdi Þingmenn sem Trump sagði heimska lúffuðu Witkoff segir annan áfanga friðaráætlunarinnar hafinn Musk fellst á að hætta að framleiða kynferðislegar myndir en bara sums staðar Sjá meira
Enn deilt um Epstein-skjölin: Dómsmálaráðuneytið segir dómara ekki mega skipa óháðan eftirlitsaðila