Innlent

Hluthöfum lofað skjótfengnum gróða

Svo virðist sem hluthöfum í Skúlason Limited hafi verið lofað skjótfengnum gróða, fjárfestu þeir í fyrirtækinu. Grunur leikur á að fleiri íslensk fyrirtæki en Skúlason Limited tengist rannsókn á umfangsmiklu peningaþvætti. Fréttastofan náði sambandi við þrjá breska hluthafa í Skulason Limited í dag. Einn þeirra, Edward James Tinsley, sagðist hafa keypt bréfin í janúar eftir að breskt verðbréfafyrirtæki hafði samband við hann. Hann fjárfesti fyrir rúmar 200 þúsund krónur. Tinsley segir hagnaðarvonina hafa falist í því að fyrirtækið ætlaði á almennan hlutabréfamarkað í janúar á næsta ári. Svipaða sögu höfðu aðrir hluthafar að segja. Dave Jones, talsmaður efnahagsbrotadeildar bresku lögreglunnar, segir að staðan sé þannig að lögreglan verði að sjá hvaða upplýsingar hafi komið út úr húsleitinni. Það verði að greina þær, rannsaka og meta og þetta verði langt og flókið ferli.  Jóhannes Skúlason, framkvæmdastjóri Skúlasonar ehf. og annar af stærstu hluthöfum Skúlasonar Limited, segir að hann hafi rætt við rúmlega eitt hundrað manns þegar hann reyndi að selja hlutabréf í fyrirtækinu. Áform fyrirtækisins í Bretlandi hafi verið þau að koma upp símsölu og símsvörun líkt og á Íslandi. Þau áform stæðu enn þá til. Hann sagði ennfremur að til stæði að fyrirtækið færi á markað í Bretlandi í framtíðinni, en fyrirtækið hefur ekki hafið neina starfsemi þar í landi aðra en að kynna fyrirtækið. Jóhannes var spurður hvort allt hlutaféð frá þessum 175 bresku aðilum hefði skilað sér. Hann sagðist halda það og ekki vita annað. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir náðist ekki í framkvæmdastjóra Skúlasonar Limited í Bretlandi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×