Erlent

Tekinn af lífi

Yfirvöld í Indiana tóku í fyrrinótt Alan Matheney af lífi með eitursprautu en hann var dæmdur til dauða fyrir morðið á fyrrverandi eiginkonu sinni árið 1989. Matheney framdi morðið þegar hann fékk átta klukkustunda langt leyfi úr fangelsi en hann sat þá inni fyrir að hafa ráðist á eiginkonuna fyrrverandi, nauðgað henni og skilið eftir nær dauða en lífi. Matheney er 41. maðurinn sem tekinn er af lífi í Bandaríkjunum í ár og sá fimmti í Indiana en þar hafa ekki fleiri verið teknir af lífi á einu ári síðan 1938.  



Fleiri fréttir

Sjá meira


×