Þreifingar í Þýskalandi 28. september 2005 00:01
Aðstoðarmenn Gerhards Schröder, fráfarandi kanslara Þýskalands úr Jafnaðarmannaflokknum, og Angelu Merkel, formanns Kristilegra demókrata, sýndu engin merki um vilja til málamiðlunar í deilunni um það hvort þeirra ætti að verða kanslari er forystumenn beggja flokka settust niður í Berlín í gær til að halda áfram þreifingum um hugsanlegt stjórnarsamstarf. Talsmenn flokkanna sögðu viðræðurnar að svo komnu máli aðeins myndu snúast um frekari þreifingar um stefnulega snertifleti, einkum og sér í lagi að því er varðar ríkisfjármálin. Ekki liggur fyrir enn nein ákvörðun um að flokkarnir fari út í formlegar stjórnarmyndunarviðræður. Merkel sagði í gær að "mörg skref" yrði að stíga enn áður en til slíks kæmi. Meðal skilyrða sem hún hefur sett fyrir því er að Schröder og hans menn sætti sig við að hún, sem leiðtogi stærsta þingflokksins, hefði tilkall til þess að leiða slíka ríkisstjórn. Í þýskum fjölmiðlum eru kenningar um að hugsanleg lausn á "kanslaraspurningunni" kunni að felast í því að bæði Schröder og Merkel víki fyrir þriðja manni. Sá gæti orðið Christian Wulff, vinsæll forsætisráðherra Neðra-Saxlands úr flokki Merkel. Önnur lausn er sögð geta falist í því að Schröder og Franz Müntefering, formaður SPD, hefðu stólaskipti og Müntefering yrði varakanslari í stjórn sem einhver annar CDU-maður en Merkel færi fyrir. Þessi síðarnefnda tilgáta var tíunduð í dagblaðinu Süddeutsche Zeitung í gær, en Klaus-Uwe Benneter, framkvæmdastjóri SPD, vísaði henni á bug sem "hreinum getgátum". "Stefnumál okkar eru samtvinnuð leiðtoga okkar, Gerhard Schröder - það er ekki hægt að skilja þau að," sagði hann. Báðir aðilar hafa sagst eiga von á því að þreifingaviðræður haldi áfram í næstu viku, en þá verða loks endanleg úrslit þingkosninganna ljós, þar sem á sunnudag verður kosið í því eina kjördæmi þar sem fresta þurfti kosningunum vegna andláts eins frambjóðandans. Skoðanakannanir benda þó ekki til að úrslitin úr þessu kjördæmi í Dresden breyti neinu um valdahlutföllin milli stóru flokkanna á þingi, þar sem CDU hefur þremur fulltrúum fleiri en SPD.
Erlent Fréttir Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira