Skárra en óttast var 24. september 2005 00:01
Ingólfur Bjarni Sigfússon fréttamaður segir að sem stendur sé ástandið heldur skárra en óttast hafi verið í Houston vegna fellibylsins Rítu. Verst sé ástandið líklega þar sem miðja fellibylsins fór yfir í morgun í kringum bæina Beaumont og Lake Charles, skammt frá landamærunum að Louisina, en þaðan hafi nánast engar fréttir borist og ástandið því enn óvíst. Flestir bæjarbúar muni hafi verið flúnir. Í Houston hefur veðrið heldur færst í aukana frá því í morgun. Vesturvængur fellibylsins hefur sótt í sig veðrið og er að færa sig í vestur og yfir borgina. Gler fýkur af háhýsum og rusl fýkur um allt. Tré hafa fallið og flóð er á stöku stað þar sem bylurinn hefur farið yfir. Að minnsta kosti hálf milljón íbúa er rafmagnslaus og tilkynnt hefur verið að nokkuð hafi verið um innbrot. Engar fréttir hafa borist af manntjóni. Ingólfur Bjarni segir að sérfræðingar tali um að það geti verið að Ríta stoppi þegar hún verði komin norður fyrir Houston og snúi þá aftur og valdi því einhverjum usla fram eftir næstu viku. Fellibylurinn Ríta gekk á land í Texas og Louisiana klukkan hálfátta í morgun að íslenskum tíma. Miðja fellibylsins fór yfir suðvesturströnd Louisiana, rétt austan við borgina Sabine Pass í Texas, og mældist vindhraðinn tæpir tvö hundruð kílómetrar á klukkustund. Ríta hefur þegar farið yfir Galveston og þar standa nokkur hús í ljósum logum en nær allir íbúar voru flúnir. Eins rofnuðu flóðvarnargarðar í New Orleans og vatn flæddi um nýþurrkaðar götur, þrátt fyrir að miðja fellibylsins kæmi á land um 320 kílómetrum vestan við borgina. Fellibylurinn sveigði lítillega til austurs miðað við fyrri spár, sem þýðir að Houston mun líklega sleppa betur en ráð var fyrir gert. Um tvær milljónir manna hafa flúið borgina undanfarna daga.
Erlent Fréttir Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Fleiri fréttir Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september Sjá meira